Selja-Gvendur

selja_gvendur3.jpg Guðmundur Torvardson hét bóndi er bjó á Seljum í Helgafellsveit, og var hann því nefndur Selja-Gvendur. Hann var faðir Þórdísar, faðir Einars Daneborcsmans á Kollarfjarðarnesi. selja_gvendur1.jpg

Guðmundur var mikill maður vexti og karlmenni mikið. Einn sunnudag eftir messu lenti honum saman við Hallgrím lækni, og ætlaði Hallgrímur að berja hann, því hann var kenndur. Þeir voru staddir í skemmu og læsti Hallgrímur henni. Eftir það heyrðist hark mikið í skemmunni og var farið inn til þeirra. Hafði Guðmundur þá troðið Hallgrími upp fyrir kistu eina mikla og þjappaði þar að honum all óþyrmilega. Því næst voru þeir skyldir. En sagt er að Hallgrímur væri Guðmundi betri eftir en áður.

Um viðureign þeirra Hallgríms læknis og Guðmundar, var þetta kveðið:

"Seigur er hann Selja-Gvendur

sá hefur nógu sterkar hendur

að byrja við hann Bacmann slag

Var hann þá að víni kenndur

vörnin hans í minni stendur

sem að skeði sunnudag"

selja_gvendur2.jpg


"Nei, tú skalt bara minnast til tað næstu ferð"

faereyjar_1.jpg

Jens Guð, bloggari, rithöfundur og útgefandi með meiru hafði sagt mér í mörg ár að Færeyjingar væru ljúfari en lömb, og vildu gera allt fyrir íslendinga sem þeir gætu. Hvort sem við kæmum til Færeyja, eða þeir hingað, þá vildu færeyjingar íslendingum allt vel. Ekki nóg með það heldur nánast dáðu Færeyjingar Ísland og íslendingar Færeyjinga. Þessu tók ég með fyrirvara. Í bili.

Margar heyrði ég sögurnar frá Jens um Færeyjinga. Flestar nokkuð ótrúverðugar og ótrúlegar. Það gat ekki verið að ein þjóð dáðist að Íslandi svona mikið. Ég spurði Jens Guð út í þetta. Jens sagði mér að það væri gagnkvæm væntumþykja til Færeyjinga þó reyndar skorti upplýsing um Færeyjar hér á landi. Sem er rétt. faereyjar_4.jpg Íslendingar vita meira um Kuala Lumpur en Klaksvik í Færeyjum. Sem er synd.

Mér fannst Guðinn alltaf ýkja dálítið með sögur sínar af ferðum sínum til Færeyja. Dæmi var að maður gæti gengið inn á hvaða heimili sem er, óboðinn og fullur og þegið pönnukökur

Færeyjingar væru æstir í að bjóða íslendingum pönnukökur. Þetta fannst mér ansi magnað og prófaði þetta sjálfur þegar ég fór í fyrsta skipti til Færeyja. Það stóð heima.

Færeyjar get ég ekki líkt við annað en himnaríki. Töllvörðurinn á flugstöðinni er lyklapétur.

faereyjar_3.jpg

Ég hafði keypt einni flösku of mikið af víni að sögn tollvarðarins. Ég var í vímu af þægindar andrúmslofti og vellíðu. Smá drukkin líka.

Ég sagði fyrirgefðu, "ég bara skila flöskunni til baka og biðst innilegrar afsökunar"

Tollvörðurinn brosti og lokaði töskunni og sagði "Nei, tú skalt bara minnast til tað næstu ferð" blikkaði mig og renndi flöskunni ofan í töskuna aftur. faereyjar_2.jpg

Þegar til Torshavnar var komið, eftir 30-40 min rútuferð, leið mér eins og engli. Yfirvegunin var svo þvílík og fólkið var svo frábært að ég trúi því varla enn. Ekki skemmdi það að sitja við hliðina á Jens Guð. Ég þarf að fara aftur til Færeyja til að ná því hversu færeyjingar eru elskulegir í garð íslendinga. Ég næ ekki ástæðunni., en einhverra hluta vegna þykir mér vænst um færeyjinga til baka.


Öllum sprengju þotum beint til Íslands.

Ísland er meira en óvinsælt. Allar farþegaþotur sem minnsti grunur er að sé sprengja í er leiðbeint beint til Íslands. Icesave? Veit ekki. Held samt ekki.

johanna_sigur_ardottir.jpg

Ég held að ástæðan sé sú að hér er alltaf kalt og allt svo dýrt. Svo hata líka útlendingar Jóhönnu Sigurðardóttir. Gissur Sigurðsson er líka mjög óvinsæll. Jón Gnarr er sá maður sem virðist koma í veg fyrir algjöra tortímingu landsins.

icesave.jpg

 

 


mbl.is
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jólabjór. Jóla Kaldi VS Egils Malt Jólabjór.

jolabjoradomamynd.jpg

Og þá er komið að því sem enginn hefur beðið eftir. Jólabjóradómar.

Ég smakkaði Jóla Kalda í fyrsta skipti um daginn. Jóla Kaldi er bjór sem er bara framleiddur fyrir jólin eins og allir jólabjórar. Kaldi er alveg frábær bjór. Nokkuð bragðmikill en vel þambanlegur, eins og bjór á að vera. jola_kaldi.jpg   Bragðið minnir helst á það sem maður gæti ýmindað sér að vatn í himnaríki bragðist. Það er fátt betra en að slaka einum ísköldum Jóla kalda í sig áður en maður fer á skíði.

Jóla Kaldi er dökkur bjór þó gjörólíkur öðrum bjórum sem Bruggsmiðjan á Ársskógarsöndum hefur gefið út áður. Hann er eins og ég segi bragðmikill og er 5,4% að veikleika. Ég mæli með Jóla Kalda fyrir alla sem finnst gaman í snú-snú.

Jóla Kaldi.

Veikleiki: 5,4%

Verð: 316 kr flaskan sem er allt of dýrt.  Ég gef Jóla-Kalda 17 rop af 20.

*****************

  santa_claus.jpg

 

 

 

 En þá er komið að trúlega besta bjór sem er frammleiddur á Íslandi. malt_jolabjor.jpg

Sá djöfull heitir Egils Malt Jólabjór. Hann smakkast eins og gott sælgæti. Sætur, með pínu karamellukeim, svo ekki sé minnstá hið ljúffenga malt bragð. Ég mæli innilega með Egils Malt Jólabjór sem fyrsta þamb-bjórnum. Svo mega aðrir fylgja á eftir.

Það er ekki gott að þamba 11-12 kippur af bjórnum á einu og sama kvöldinu. Þá getur maður fengið ógeð og ælt eins og múkki. Einungis spari. Egils Malt Jólabjórinn er millidökkur og var einmitt fyrsti jólabjór Egils verksmiðjunnar. Áður hafði Viking einungis verið með jólabjór svo það var kærkomin nýjung. Einn stór galli Egils Malt Jólabjórinn er sá að hann er allt of allt of dýr. Ég man þá gömlu góðu daga þegar flaskan kostaði 198 krónur sem er samt allt of dýrt í rauninni, því þetta er bara einn lítill flöskutittur. malt_jolabjor_ver.jpg

Ég get  fullyrt að Malt jólabjórinn sé með allra bragðbestu bjór sem ég hef smakkað, ef ekki sá besti.

Egils Malt Jólabjór

Veikleiki: 5,6%

Verð: 279 kr flaskan, sem er bara steypa! 

Ég gef Egils Jóla Malt Bjórnum 20 rop af 20!

********************

 

Svo þegar á toppinnn er hvolft, tekur Egils Malt Jólabjórinn síðustu lotuna með vinstri krók beint í flöskuhálsinn á Jólakalda og rotar hann, Jóla Kaldi átti aldrey möguleika allan bardagann.

drunken_santa.jpg


Súrmjólk!

Þetta að koma fyrst núna?? Ég sá þetta á FOX NEWS fyri svona 12 tímum
síðan! Dyrir utan það þá held ég að fréttablaðið hafi verið með þessa
frétt í gær. Hvað er í gangi?
mbl.is Helltu milljónum lítra mjólkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áfram Selveiðar!

Ég held aðvinur minn Guðni hákarlaveiðimaður færi létt með að sniffa uppi Osama Bin Laden.

  britishlion.jpg

Þegar Bretar settust hér að, breyttist land, þjóð og menning strax til hins betra. Ef þjóðverjar hefðu náð Íslandi, væruþeir einu skrefi frá Kanada og Bandaríkjunum. Við getum þakkað bretum fyrir að hafa komið. Ég hef ávallt dáðst að breska ljóninu fyrir framgang sinn í Seinni Heimstyrjöldinni. Stóðu sig vel gagnvart 10 sinnum stærri flugher breta í orustunni um Bretland.


mbl.is Átök njósnara á Íslandi 1944
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flatlúsin.

Við vorum á leið til Raufarhafnar, þegar einn skipsfélaganna tók mig afsíðis, og trúði mér fyrir viðkvæmu leyndarmáli. Hann hafði krækt sér í flatlús. Þar sem ég var kunnugur á Raufarhöfn, bað hann mig um að útvega sér eitthvað til að eyða óværunni.

  sjoma_ur.jpg

Fór ég á fund Lárusar Jónssonar læknis, vel þekkts manns í læknastétt, meðal annars fyrir að hafa verið á tíma yfirmaður á kleppi, eftir að Hriflu Jónas rak Helga Tómasson. Minna var hann þektur fyrir reglusemi. Læknirinn tók mér vel, enda í glaðara lagi. Bauð hann í glas, og vildi spjalla, en alls ekki um flatlús. Það væru skordýr sem eyða ætti með eitri, sem nóg væri í Kaupfélaginu.

Í Kaupfélaginu keypti ég 3 lítra brúsa af DDT skordýraeitri, minni skammtur fékkst ekki. Og stóra úða dælu. Hélt ég með þetta um borð í strigapoka og faldi vel. Nokkru síðar, er við vorum staddir djúpt út af Axarfirði fór ég með félaga mínum um miðja nótt upp á dekk, til að herja á flatlúsina. Tókum við kokur stöðu fyrir aftan stýrishúsið, svo vaktmaður þar sæi ekki til okkar. Útlitið var ekki gott þegar vinur minn stóða þarna stór og breiðvaxinn og allsnakinn. Flatlús á að vera nokkuð staðbundin, en svo loðinn var hann um skrokkinn, að lúsin var skriðin út um allt. Hrósaðir ég happi, að nóg skyldi vera til af eitrinu.

Dæluna fyllti ég margsinnis, gekk í kringum félaga minn og dældi eins hratt og ég gat. Áhrifin létu ekki á sér standa. Hef ég ekki séð annan eins stríðsdans og þann sem vinur minn steig, þegar allar flatlýsnar hófu dauðastríðið samtímis. Guðs mildi, að hann hoppaði ekki fyrir borð.Lýsnar hreyfðu sig ekki meira.  

Seinna var DDT eitrið sett á bannlista um allan heim sem lífshættulegt efni. Sagði mér sérfræðingur að skammturinn sem ég keypti í Kaupfélaginu hefði með réttri aðferð nægt til að drepa Nashyrning.

 

Tekið ú gömlum annáli.


Steingrímur á Silfrastöðum

hestur_874519.jpg

Eitt sinn á efstu árum sínum fór Steingrímur á Sauðárkrók eftir sláturtíð, þá löngu orðin blindur. Tíð var ágæt. Við vorum fjögur með Steingrími að telja, sem urðu samferða Steingrími úr kaupstaðnum. Síðast komum við til Jónasar læknis, sem þá var ekki kominn í náttúrulækninguna, og drukkum þar kaffi og vel út í. Var töluverð sletta komin í Grím er við fórum. Hann reið gráum hesti, stólpa grip. Um leið og hann var kominn á bak slær hann í hestinn, sem til allrar hamingju snýr í suður, svo hann tók sprettinn fram allan veg, og er skemmst frá því að segja að við náðum Steingrími ekki fyrr en fram undan Gili. Var þá stansað og heimtaði Steingrímur þegar brennivín. Hvað hann okkur mestu drullusokka og lumpna æði að halda í þetta við sig og vera að drekka sjálfir, sem hann fullyrti. Gerðist hann töluvert ölvaður, en sat þó Grána prýðilega.

Tekið úr gömlum annáli.


Black Ingvars!

Black Ingvars er sænsk stórgóð metal hljómsveit. Veit ekki svo mikið um hana eins og stendur. Færeysk vinkona mín sendi mér þessi lög. Ég læt þau flakka með. Ég blogga um bandið um leið og ég veit meira um það.


Rock n Roll VS Pop

michael_jackson.jpg

Margir jagast á um hvort sé betra og skemmtilegra. Popp eða rokk. Sumir halda þvi jafnvel fram að um sömu tónlist sé að ræða. Sjálfskipaður poppkúngurinn Michael Jackson er nú látinn langt fyrir aldur fram. Flestir syrgja hann. Þó ekki ég. Jackson má þó eiga að hann keppti við látinn tónlistarmann í plötusölu. Sjálfan Elvis Presley. Jackson á mest seldu plötu í heiminum. Thriller, og einhverra hluta vegna man ég ekki hvernig lagið hljómar. Ég heyri alltaf Goastburster lagið í huga mér þegar ég heyri nafnið Thriller. Hvað um það.

Það er ekki mitt að dæma hvort Jackson hafi verið góður. Tölur skera út um það. Fjöldinn ræður. Rokkið byrjaði í Bandaríkjunum 1951 þegar Ike Turner söng Rocket 88 inn á plast hjá Sam Phillips í Sun Records í Memphis Tennessee. Rokkið sprakk svo út 1956. Elvis var orðinn alheimsþekktur rétt eins og Fats Domino. Chuck Berry var þekktur um öll Bandaríkin en átti nokkrar vikur í að verða heimsfrægur. Little Ridchard fanns mörgum bara vera skrýtin öskrandi náungi, en náði þó árangri fljótt og snemma. Jerry Lee Lewis var elskaður af fólki á aldrinum 10-20 ára. Viltur skæruliði sem hafði ekkert markmið.

serman_vs_elvis.jpg

Rokkið í dag er hálgerð yfirsjón yfir rokkið þegar það byrjaði. Nema eitt. Menn einblína á það að vera sem svalastir. Sólgleraugu og íþróttagallar eru inn í dag. Sem er allt í lagi. Menn reyna að vera sem frumlegastir í tónlist sem er fagnaðarefni. Aftur á móti fatta ég ekki hvers vegna ekki nokkur einasta hljómsveit höfðar til mín. Utan Lay Low. Og hún er ekki einu sinni hljómsveit.

Langi Seli og Skuggarnir eru frábærir, en vantar allt piano. Ég ætla ekki að fara að nefna allar hljómsvetir hérna á blogginu sem ég fíla ekki enda væri það ævisaga, en einhverja hluta vegna ná þessar hljómsveitir ekki til mín.

 


Næsta síða »

Um bloggið

Siggi Lee Lewis

Höfundur

Siggi Lee Lewis
Siggi Lee Lewis
Það geta allir spilað Jerry Lee Lewis, en engin verið betri hann nema Siggi Lee Lewis!

Jukebox

Feb. 2010
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28            

Nýjustu myndir

  • ...ja_gvendur2
  • ...ja_gvendur1
  • ...ja_gvendur3
  • ...faereyjar_2
  • ...faereyjar_4

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.2.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 98
  • Frá upphafi: 13898

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 71
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband